Handhæg pumpa sem er fullkomin fyrir hjólaeigendur. Pumpan nær allt að 150 psi þrýstingi sem er meira en nóg fyrir flestar aðstæður. Pumpan er líka forrituð þannig að ef þú stillir hana á ákveðið psi gildi þá stoppar hún þegar það er kominn fyrirfram ákveðinn loftþrýstingur í dekkið. Pumpan er með lítinn skjá framan á sér sem sýnir þér þrýstinginn hverju sinni.
Mi Electric Portable Pump er lítil og nett og því auðvelt að taka hana með sér þegar maður er á ferðinni.
Tæknilegar upplýsingar:
Stærð: Án slöngu 124 x 71 x 45,3 mm
Hleðsla: 5V við 2A
Rafhlaða: 2000 mAh (14,8Wh)
Hleðslutími: Undir 3 klukkustundum
Tengi: Micro-USB
Hávaðastyrkur: Undir 80dB í meters fjarlægð.
Hitaþol: -10°C – 45°C
Þrýstingur: Vinnur á 0,2-10,3bar/3-150psi