Deerma DR035 er lítill hitabrúsi með innbyggðum hitara. Xiaomi Deerma hitabrúsinn tekur 350 ml. og er tilvalin í ferðalagið, í vinnuna eða til að blanda mjólk fyrir ungabörn.
Brúsinn er með tvær stillingar: Sjóða vatn og halda stöðugu hitastigi (40-90°C)
Það er t.d. mjög hentugt að geta stillt á stöðugan hita við 40°C þegar verið er að útbúa þurrmjólkurblöndu fyrir pela.
Fjölþrepa öryggi. Hitaelementið slekkur sjálfkrafa á rafmagni við þessar aðstæður: vatnsskortur, vatn sýður og ofhitnun vegna bilunar í tækinu.
Brúsinn er með sílikon þéttihring, þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af leka.
Ath. Eingöngu er hægt að hita upp með rafmagni úr 220V innstungu, þar sem brúsinn er ekki með innbyggða rafhlöðu.
Hitastig sem er mælt með:
Hituð mjólk: 50 - 60℃
Blandað mjólkurduft: 40℃
Eiginleikar:
Framleiðandi: Deerma (Xiaomi Eco-system).
Tegund: DEM-DR035.
IMD sýnir hitastig í rauntíma.
Innra byrði: Ryðfrítt stál – auðþrifið.
Innbyggður nemi sem skynjar vökvaþurrð.
Rúmmál vökva: 350 ml.
Spenna inn: 220V: 50Hz.
Afl: 300W.
Stjórnað með: Snertirofar .
Hitasvið: 40-90°Celsius.
Nettó þyngd: 300 gr.
Stærð kassa: U.þ.b. 24 x 9 x 9 cm.
Þyngd pakka: U.þ.b. 500 gr.
Ath.
1. Slökkvið á tækinu þegar ekki þarf að halda stöðugu hitastigi.
2. Þegar er stillt á stöðugt hitastig, þá kveikir brúsinn á hitaelementinu þegar hitinn fellur niður fyrir það hitastig með er stillt á.
Komdu og skoðaðu þessa vöru í sýningarrými okkar í Skipholti 35!
Það er 2 ára ábyrgð á öllum vörum Tunglskins.