LED ljósaborði til að setja undir rafhlaupahjól.
(5.990 kr.)
Ljósaborðinn er með RGB litablöndun, þannig að þú hefur mjög marga litamöguleika. T.d. einlitt stöðugt ljós, ljósflökt, litaskipti, blikkandi í einum lit eða mörgum. Láttu reyna á ímyndunaraflið.
Vatnsþétt ljós með tiltölulega stórum díóðum sem lýsa vel og eiga að endast.
Lífgaðu upp á umhverfið og ekki síður sjálfan þig með smá töffaraútliti og ekki síður ertu miklu öruggari þar sem þú sést miklu betur!
Ath. Ekki fikta lengi í einu í stillingunum á meðan þú ert að nota hjólið. Þegar þú tengir ljósin við rafhlöðuna, passaðu að snúa tenginu rétt, svo að allt virki.
Í pakkanum er:
2 ljósaborðar
1 rafhlöðuhylki
1 vatnsheld taska utanum rafhlöður
1 straumsnúra
1 límband með lími báðum megin
1 festing fyrir rafmagnssnúru